Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   sun 22. júlí 2018 18:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hildur Antons: Mjög skemmtilegur tími hjá HK/Víkingi
Hildur Antonsdóttir.
Hildur Antonsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Það er mjög svekkjandi að fá svona mörg mörk á sig, sérstaklega þar sem við stóðum í þeim á köflum," sagði Hildur Antonsdóttir, leikmaður HK/Víkings, eftir tap gegn Íslandsmeisturum Þórs/KA í eina leik dagsins í Pepsi-deild kvenna.

Lestu um leikinn: HK/Víkingur 2 -  5 Þór/KA

„Þær eru með gott sóknarlið sem klárar færin sín vel og þær kláruðu leikinn þannig, með því að klára færin sín."

Hildur er búin að skora í þremur leikjum í röð og er komin með fimm mörk í Pepsi-deildinni í sumar.

„Ég er búin að vera að taka aukæfingar í að klára færi, það er að skila sér," sagði Hildur og brosti.

Hildur hefur spilað með HK/Víkingi í sumar á lánssamningi frá Breiðabliki. Hún snýr núna aftur í Kópavoginn. „Ég er mjög spennt fyrir því. Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími hjá HK/Víkingi og hjálpaði mér mikið. Núna er næsta verkefni að fara aftur til Breiðabliks og berjast um titilinn þar."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner