Jasmín Erla Ingadóttir skoraði þrennu er Stjarnan slátraði Aftureldingu, 7-1, í Bestu deild kvenna í kvöld. Vítaspyrnuklúður í fyrri hálfleik hvatti hana til að bæta upp fyrir það og það gerði hún svo sannarlega.
Stjarnan lenti marki undir á 5. mínútu leiksins. Jasmín fékk gullið tækifæri að jafna leikinn á 27. mínútu er Stjarnan vann vítaspyrnu en Eva Ýr Helgadóttir sá við Jasmín.
Nokkrum mínútum síðar skoraði hún og fylgdu svo tvö mörk til viðbótar.
„Mér líður bara mjög vel. Þetta var erfitt og mikill barningur en 7-1, við getum ekki kvartað."
„Bara pirrandi. Við vitum að við eigum að gera betur en það þýðir ekkert að hætta. Þurftum að rífa okkur í gang og koma inn marki."
„Já, ég vissi alltaf að ég væri að fara skora í þessum leik. Þegar ég klúðraði þessari vítaspyrnu þá þurfti ég að stíga upp og gera betur."
„Nei, við þurftum bara að rífa okkur í gang og þegar ég klúðraði þá var ekkert annað í boði en að bæta upp fyrir það."
Þór/KA vann Þrótt, 1-0, fyrr í kvöld og eru það góðar fréttir fyrir Stjörnuna sem er nú í 3. sæti með 27 stig, tveimur stigum á undan Þrótturum.
„Ég vissi það ég talaði við Andreu Mist í gær. Við ætluðum að gera greiða fyrir greiða. Þetta verður hörð barátta alla leið en við eigum erfiða leiki líka og þær líka. Eina sem við getum gert er að fókusera á okkur."
Anna María Baldursdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir eru frá vegna meiðsla en það sló Stjörnuna ekki útaf laginu.
„Nei, það var kannski smá skjálfti í byrjun en við þurftum að finna sjálfstraustið og þegar við skorum þá var þetta aldrei spurning,"
„Nei, það er fínt þessi pása núna þannig ég býst við þeim í næsta leik," sagði Jasmín ennfremur en hún talar einnig um eigin frammistöðu í sumar, markadrottningatitilinn og landsliðið í viðtalinu hér fyrir ofan.






















