City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 24. febrúar 2026 21:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað var Akanji að spá?
Akanji í fyrri leiknum gegn Bodö/Glimt.
Akanji í fyrri leiknum gegn Bodö/Glimt.
Mynd: EPA
Norska félagið Bodö/Glimt er við það að slá ítalska stórliðið Inter úr leik í Meistaradeildinni.

Bodö vann fyrri leikinn á heimavelli 3-1 og staðan er 2-0 á San Siro þegar þessi frétt er skrifuð. Það eru um 20 mínútur eftir af leiknum.

Bodö komst yfir núna fyrir stuttu eftir skelfileg mistök hjá Manuel Akanji, varnarmanni Inter.

Akanji var að bera boltann úr vörninni og ætlaði að gefa hann svo til baka, en þar var enginn nema leikmaður Bodö.

Yann Sommer varði fyrstu skottilraunina en Jens Petter Hauge náði frákastinu og skoraði.

Bodö var svo að skora annað mark og þeir eru í raun búnir að ganga frá dæminu.

Með því að smella hérna er hægt að sjá myndband af markinu.
Athugasemdir
banner