Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Forest að fá tvo leikmenn frá Juventus
Timothy Weah
Timothy Weah
Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur náð samkomulagi við Juventus um kaup á Timothy Weah og Samuel Mbangula en ESPN greinir frá þessu.

Kaupverðið er samanlagt um 22 milljónir evra.

Félagið er enn í viðræðum við báða leikmennina svo það er ekkert í höfn ennþá.

Weah er 25 ára gamall bandarískur hægri vængmaður. Hann gekk ungur að árum til PSG og lék sex leiki með liðinu áður en hann gekk til liðs við Lille. Hann færði sig síðan til Juventus árið 2023 þar sem hann hefur leikið 78 leiki og skorað sjö mörk.

Mbangula er 21 árs gamall belgískur vinstri vængmaður en hann hefur verið í herbúðum Juventus frá 2020 en hann var einnig í unglingaliðum Club Brugge og Anderlecht.

Hann spilaði sína fyrstu leiki fyrir aðalliði Juventus á síðustu leiktíð og spilaði 32 leiki og skoraði fjögur mörk
Athugasemdir
banner