Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sigurður Hjörtur bað Sigga Lár afsökunar í hálfleik
Ekki sáttur með dóminn.
Ekki sáttur með dóminn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik á N1 vellinum á Hlíðarenda. Jóhannes Kristinn Bjarnason fór niður í vítateig eftir að Sigurður Egill Lárusson renndi sér í námunda við hann. Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmdi leikinn og benti á vítapunktinn og var Sigurður Egill sýnilega ósáttur.

Jóhannes steig sjálfur á punktinn og skoraði, jafnaði leikinn í 1-1. Sigurður Egill ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn og var spurður út í atvikið.

„Bara glórulaus dómur. Ég kom ekki við hann. Dómarinn kom að mér í hálfleik og baðst afsökunar. Við unnum 6-1 þannig mér gæti ekki verið meira sama núna," sagði Valsarinn.

Hann náði þeim áfanga í gær að verða jafnleikjahæsti leikmaður í sögu Vals í efstu deild. Hann og Haukur Páll Sigurðsson eru núna jafnir með 248 leiki spilaða í efstu deild.

Sigurður Egill kom inn í lið Vals í þessum leik, hans fyrsti byrjunarliðsleikur á tímabilinu í deildinni og lék hann allan leikinn.
Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda
Athugasemdir
banner