Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 25. janúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Klassískur stórleikur á Emirates
Mynd: EPA
Það er mikil spenna í enska boltanum í dag þar sem fjórir leikir eru á dagskrá í deild þeirra bestu.

Leikirnir eru ekki af verri endanum þar sem Crystal Palace mætir Chelsea í Lundúnaslag á sama tíma og Newcastle United fær Aston Villa í heimsókn.

Brentford spilar þá við fallbaráttuvið Nottingham Forest áður en stórleikur helgarinnar verður flautaður á.

Þar eigast Arsenal og Manchester United við í klassískum stórleik, en Arsenal trónir á toppi úrvalsdeildarinnar með fjögurra stiga forystu. Rauðu djöflarnir eru í fimmta sæti og geta tekið fjórða sætið af Englandsmeisturum Liverpool með sigri eða jafntefli á Emirates.

Arsenal er ósigrað í tólf leikjum í röð í öllum keppnum en gerði markalaus jafntefli við Liverpool og Nottingham Forest í síðustu tveimur umferðum í úrvalsdeildinni.

Leikir dagsins
14:00 Crystal Palace - Chelsea
14:00 Newcastle - Aston Villa
14:00 Brentford - Nott. Forest
16:30 Arsenal - Man Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 26 17 6 3 50 18 +32 57
2 Man City 26 16 5 5 54 24 +30 53
3 Aston Villa 26 15 5 6 37 27 +10 50
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 26 12 6 8 41 35 +6 42
7 Brentford 26 12 4 10 40 35 +5 40
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 26 9 9 8 27 30 -3 36
12 Fulham 26 10 4 12 35 40 -5 34
13 Crystal Palace 26 8 8 10 28 32 -4 32
14 Brighton 26 7 10 9 34 34 0 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 26 7 6 13 25 38 -13 27
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 26 4 6 16 28 51 -23 18
20 Wolves 26 1 6 19 16 48 -32 9
Athugasemdir
banner
banner
banner