Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 16:55
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Mansfield sló Burnley úr leik á Turf Moor
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir í gang á sama tíma í 32-liða úrslitum enska bikarsins í dag og er þremur þeirra lokið.

Úrvalsdeildarlið Burnley tók á móti Mansfield Town úr League One og náði forystunni í fyrri hálfleik. Burnley sýndi mikla yfirburði fyrir leikhlé en sagan var önnur í seinni hálfleiknum.

Mansfield tókst að jafna metin skömmu eftir leikhlé og á 80. mínútu gerði Louis Reed magnað sigurmark beint úr aukaspyrnu sem var gjörsamlega óverjandi fyrir Max Weiss.

Burnley komst nálægt því að gera jöfnunarmark á lokakaflanum en tókst ekki, svo Mansfield hafði betur. Ótrúleg úrslit þar sem C-deildarlið sló úrvalsdeildarlið úr leik.

Á sama tíma hafði Manchester City betur gegn Salford City. Heimamenn komust yfir eftir sjálfsmark snemma leiks en tókst ekki að gera út um viðureignina fyrr en Marc Guéhi skoraði á lokakaflanum, hans fyrsta mark eftir félagaskiptin í janúar. Niðurstaðan 2-0 sigur.

Norwich lagði West Bromwich Albion að velli í Championship-slag á meðan Southampton og Leicester City, sem féllu úr úrvalsdeildinni í fyrra, skildu jöfn og fara því í framlengingu.

Burnley 1 - 2 Mansfield Town
1-0 Josh Laurent ('21 )
1-1 Rhys Oates ('53 )
1-2 Louis Reed ('80 )

Manchester City 2 - 0 Salford City
1-0 Alfie Dorrington ('6 , sjálfsmark)
2-0 Marc Guehi ('81 )

Norwich 3 - 1 West Brom
1-0 Paris Maghoma ('31 )
1-1 Josh Maja ('68 )
2-1 Ben Chrisene ('82 )
3-1 Mohamed Toure ('93 )

Southampton 1 - 1 Leicester City
1-0 Cyle Larin ('45+1, víti)
1-1 Oliver Skipp ('52 )
ENN Í GANGI
Athugasemdir
banner
banner
banner