Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   lau 14. febrúar 2026 14:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjórði sigurinn í röð hjá Stefáni Teiti
Mynd: Hannover 96
Stefán Teitur Þórðarson byrjaði á bekknum þegar Hannover vann Hertha Berlin í næst efstu deild í Þýskalandi í dag.

Hannover var með 2-0 forystu í hálfleik en Hertha náði að minnka muninn með marki úr vítaspyrnu. Hannover náði aftur þriggja marka forystu áður en Stefán kom inn á undir lok leiksins. Hertha klóraði í bakkann í uppbótatíma og lokatölur urðu 3-2 Hannover í vil.

Þetta var fjórði sigur Hannover í röð en liðið er komið í 2. sæti með 41 stig eftir 22 umferðir. Liðið er aðeins einu stigi á eftir toppliði Daramstadt sem gerði jafntefli gegn Brauschweig í dag.

Brynjar Ingi Bjarnason var í byrjunarliði Greuther Furth en var tekinn af velli í hálfleik þegar liðið tapaði 1-0 gegn Kaiserslautern. Greuther Furth er á botni deildarinnar með 19 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner