Southampton 2 - 1 Leicester City
1-0 Cyle Larin ('45+1, víti)
1-1 Oliver Skipp ('52 )
2-1 James Bree ('109 )
1-0 Cyle Larin ('45+1, víti)
1-1 Oliver Skipp ('52 )
2-1 James Bree ('109 )
Southampton og Leicester City, sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra, mættust í 32-liða úrslitum enska bikarsins í dag og úr varð nokkuð jafn slagur.
Það var ekki mikið um færi en Southampton náði forystunni í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Cyle Larin skoraði af vítapunltinum.
Oliver Skipp jafnaði með laglegri hjólhestaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og var ekki meira skorað í venjulegum leiktíma, svo það þurfti að framlengja.
Varnarjaxlinn James Bree kom inn af bekknum í liði Southampton og var óvæntur markaskorari skömmu síðar. Bree skoraði á 109. mínútu og reyndist það vera sigurmarkið þar sem Leicester fann engin svör við sterkum varnarleik heimamanna.
Southampton fer því áfram í næstu umferð á meðan Leicester getur einbeitt sér að Championship deildinni.
Athugasemdir


