Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 15:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Frank væri ennþá þarna ef það væri ekki fyrir eitrað eðli stuðningsmanna"
Mynd: EPA
Igor Tudor var ráðinn bráðabirgðastjóri Tottenham í dag eftir að Thomas Frank var rekinn á dögunum eftir 2-1 tap gegn Newcastle.

Tottenham hefur aðeins unnið tvo af síðustu 17 deildarleikjum og situr í 16. sæti aðeins fimm stigum frá fallsæti. Tim Sherwood, fyrrum leikmaður og stjóri Tottenham, skilur ekki hvers vegna Tudor var ráðinn.

„Ef hann vinnur Arsenal í fyrsta leiknum, þá verður allt gott. Hann gæti jafnvel fengið starfið. Það yrði reist stytta af honum," sagði Sherwood léttur.

„Þetta verður erfitt. Hann þekkir ekki ensku úrvalsdeildina og fólk mun spyrja, skiptir það máli? Það skiptir ekki máli þegar þú ert að taka að þér starf efst í deildinni,"

„Hver er kosturinn við hann? Ef hann endar í 12. sæti, þá fær hann enga viðurkenningu. Ókostirnir eru svo hörmulegir, myndirðu vilja að fingraförin þín væru um allt Tottenham eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni? Ókostirnir eru svo miklir, það getur bara mistekist. Hann fær engan heiður fyrir að halda Tottenham í deildinni."

„Thomas Frank væri ennþá þarna ef það væri ekki fyrir eitrað eðli stuðningsmanna og ég skil alveg óánægju aðdáenda, því þeir eru ekki að ná árangri."
Athugasemdir
banner