Liam Rosenior sagði að Pedro Neto væri í heimsklassa eftir að hann skoraði þrennu í 4-0 sigri liðsins gegn Hull í enska bikarnum í gær.
Þetta voru fyrstu mörkin hans síðan hann skoraði í sigri gegn Charlton í síðustu umferð bikarsins fyrir rúmum mánuði síðan.
Þetta voru fyrstu mörkin hans síðan hann skoraði í sigri gegn Charlton í síðustu umferð bikarsins fyrir rúmum mánuði síðan.
Hann hefur fengið mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum undanfarið.
„Ég vissi ekki af því og ég skil ekki hvers vegna það er því Pedro Neto færir okkur svo marga mismunandi eiginleika sem við þurfum,“ sagði Rosenior á fréttamannafundi eftir leikinn.
„Það sem mér þykir vænt um, eins hæfileikaríkur og hann er, er að hvað hann fórnar fyrir liðið er til fyrirmyndar. Hann verður mjög mikilvægur fyrir okkur í því sem ég tel að við getum afrekað út tímabilið."
Athugasemdir


