Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 17:05
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Villa og Newcastle: Þrettán breytingar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Aston Villa tekur á móti Newcastle United í gríðarlega spennandi slag í enska bikarnum og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Unai Emery þjálfari heimamanna gerir sjö breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Brighton að velli í miðri viku þar sem leikmenn á borð við Ollie Watkins, Emiliano Martínez og Ezri Konsa setjast á bekkinn.

Tammy Abraham leiðir sóknarlínuna og fá Ross Barkley og Leon Bailey tækifæri í byrjunarliðinu.

Eddie Howe þjálfari Newcastle gerir sex breytingar frá sigri á útivelli gegn Tottenham í miðri viku. Nick Woltemade leiðir sóknarlínuna og fær William Osula tækifæri með byrjunarliðinu.

Aston Villa: Bizot, Bogarde, Lindelof, Torres, Digne, Onana, Luiz, Rogers, Barkley, Bailey, Abraham
Varamenn: Buendia, Garcia, Kone, Konsa, Maatsen, Martinez, Mings, Sancho, Watkins,

Newcastle: Ramsdale, Trippier, Thiaw, Burn, Hall, Tonali, Ramsey, J.Murphy, Osula, Barnes, Woltemade
Varamenn: Elanga, Gordon, A.Murphy, Neave, Park, Pope, Ruddy, Shahar, Willock
Athugasemdir
banner
banner