Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 18:04
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Sigurður Hrannar með tvennu
Magnaður endurkomusigur í Garðabæ
Mynd: Haukar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það fóru leikir fram í B- og C-deildum Lengjubikarsins í dag en það er orðið mjög erfitt að nálgast úrslit á vefsíðu KSÍ svo það gæti vantað einhverjar viðureignir.

Í B-deild unnu Haukar þægilegan sigur á Hvíta riddaranum þar sem Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði tvennu í 4-0 sigri. Daði Snær Ingason og Jón Arnar Barðdal komust einnig á blað.

KFG lenti tveimur mörkum undir á heimavelli gegn Sindra en Garðbæingar svöruðu heldur betur fyrir sig í síðari hálfleiknum.

Staðan var 0-2 allt þar til á 71. mínútu þegar flóðgáttirnar opnuðust. Guðni Rafn Róbertsson skoraði tvennu og gerðu Rúrik Brink Gunnarsson og Óttar Baldursson sitthvort markið til að snúa stöðunni við. Lokatölur urðu 4-2 fyrir KFG.

Að lokum hafði Hamar betur gegn Úlfunum eftir að staðan hafði verið jöfn stóran hluta leiksins. Arnór Ingi Davíðsson var atkvæðamestur með tvennu en Brynjólfur Þór Eyþórsson komst einnig á blað fyrir Hvergerðinga.

Sigvaldi Haukur Kaldalóns skoraði eina mark Úlfanna.

Haukar 4 - 0 Hvíti riddarinn
1-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('15)
2-0 Daði Snær Ingason ('32)
3-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('51)
4-0 Jón Arnar Barðdal ('71)

KFG 4 - 2 Sindri
0-1 Jóhannes Adolf Gunnsteinsson ('21)
0-2 Abdul Bangura ('31)
1-2 Guðni Rafn Róbertsson ('71)
2-2 Rúrik Brink Gunnarsson ('73)
3-2 Óttar Baldursson ('79)
4-2 Guðni Rafn Róbertsson ('85)

Hamar 3 - 1 Úlfarnir
1-0 Arnór Ingi Davíðsson ('11)
1-1 Sigvaldi Haukur Kaldalóns ('38)
2-1 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('65)
3-1 Arnór Ingi Davíðsson ('88)
Athugasemdir
banner