Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Slot vonast til að Curtis Jones framlengi við Liverpool
Mynd: EPA
Curtis Jones, miðjumaður Liverpool, var orðaður við Inter undir lok félagaskiptagluggans í janúar en Arne Slot er ánægður að enski miðjumaðurinn sé áfram hjá félaginu.

Jones á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool en Slot vonast til að hann muni skrifa undir nýjan samning.

„Það er mjög eðlilegt að stór félög hafi áhuga á mjög góðum leikmönnum, eins og við sem erum að reyna framlengja samninginn hans," sagði Slot.

„Ef samningurinn er að renna út er eðlilegt að önnur stór félög hugsi: 'Kannski er hægt að næla í hann'."
Athugasemdir
banner