Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   lau 14. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Spennandi slagir á Anfield og Villa Park
Mynd: EPA
Mynd: EPA
32-liða úrslit enska bikarsins halda áfram í dag eftir að Chelsea og Wrexham unnu sína leiki í gærkvöldi til að tryggja sér farmiða í næstu umferð.

Sjö úrvalsdeildarlið mæta til leiks í dag og eru afar spennandi úrvalsdeildarslagir á dagskrá seinni partinn. Aston Villa tekur þar á móti Newcastle áður en Liverpool spilar við Brighton.

West Ham United heimsækir Burton í fyrsta leik dagsins áður en Manchester City fær Salford City í heimsókn.

Á sama tíma á Burnley heimaleik við Mansfield Town og eru áhugaverðir slagir úr Championship deildinni einnig í sviðsljósinu.

Leicester City og Southampton, sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra, eigast þar við á meðan Norwich spilar við West Bromwich Albion.

Leikir dagsins
12:15 Burton - West Ham
15:00 Burnley - Mansfield Town
15:00 Man City - Salford City
15:00 Norwich - West Brom
15:00 Port Vale - Bristol City
15:00 Southampton - Leicester
17:45 Aston Villa - Newcastle
20:00 Liverpool - Brighton
Athugasemdir
banner
banner
banner