Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Bayern endurnýjar forystuna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru fimm leikir fram á sama tíma í þýska boltanum í dag þar sem Þýskalandsmeistarar FC Bayern höfðu betur gegn fallbaráttuliði Werder Bremen.

Heimamenn í Bremen sýndu flotta takta og fengu góð færi til að skora sem fóru forgörðum. Bæjarar voru sterkari aðilinn og nýttu sín færi svo lokatölur urðu 0-3.

Harry Kane skoraði fyrstu tvö mörk leiksins í fyrri hálfleik áður en Leon Goretzka innsiglaði sigurinn á 70. mínútu.

Bayern endurnýjar því sex stiga forystu sína á toppi deildarinnar, með 57 stig eftir 22 umferðir.

Hoffenheim er í þriðja sæti eftir verðskuldaðan sigur gegn Freiburg og kemur Bayer Leverkusen í fjórða sæti.

Leikmenn Leverkusen deildu mörkunum bróðurlega á milli sín í stórsigri gegn fallbaráttuliði St. Pauli. Jarell Quansah, Patrick Schick, Edmond Tapsoba og Ernest Poku komust á blað í 4-0 sigri.

Eintracht Frankfurt lagði svo Borussia Mönchengladbach að velli á meðan nýliðar Hamburger SV unnu gegn Union Berlin í neðri hluta deildarinnar. HSV fer upp að hlið Berlin með sigrinum þar sem bæði lið eru sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Werder Bremen 0 - 3 Bayern
0-1 Harry Kane ('22 , víti)
0-2 Harry Kane ('25 )
0-3 Leon Goretzka ('70 )

Hoffenheim 3 - 0 Freiburg
1-0 Fisnik Asllani ('46 )
2-0 Ozan Kabak ('51 )
3-0 Valentin Gendrey ('90 )

Bayer Leverkusen 4 - 0 St. Pauli
1-0 Jarell Quansah ('13 )
2-0 Patrik Schick ('14 )
3-0 Edmond Tapsoba ('52 )
4-0 Ernest Poku ('78 )

Hamburger 3 - 2 Union Berlin
0-1 Leopold Querfeld ('28 , víti)
1-1 Ransford Konigsdorffer ('35 )
2-1 Nicolas Capaldo ('45 )
3-1 Ransford Konigsdorffer ('82 )
3-2 Andrej Ilic ('89 )

Eintracht Frankfurt 3 - 0 Mönchengladbach
1-0 Nathaniel Brown ('24 )
2-0 Ayoube Amaimouni-Echghouyab ('34 )
3-0 Ansgar Knauff ('75 )
Athugasemdir
banner