Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak veikur í tapi gegn Stuttgart
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stuttgart 3 - 1 Köln
1-0 Ermedin Demirovic ('15 )
1-1 Ragnar Ache ('79 )
2-1 Ermedin Demirovic ('84 )
3-1 Deniz Undav ('92 )

Ísak Bergmann Jóhannesson var fjarverandi vegna veikinda er Köln heimsótti RB Leipzig í lokaleik dagsins í efstu deild þýska boltans.

Ermedin Demirovic kom Stuttgart yfir eftir stundarfjórðung með marki af stuttu færi og héldu heimamenn forystunni allt þar til á lokakaflanum.

Stuttgart var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Köln verðskuldaði að gera jöfnunarmark þegar Ragnar Ache kláraði með laglegri vippu eftir að samherjar hans unnu boltann hátt uppi á vellinum.

Demirovic var þó aftur á ferðinni fimm mínútum síðar til að taka forystuna á nýjan leik, í þetta skiptið gerði hann vel að klára eftir magnaða fyrirgjöf frá Ramon Hendriks.

Köln reyndi að svara fyrir sig en tókst ekki. Þess í stað innsiglaði Deniz Undav sigurinn í uppbótartíma. Lokatölur 3-1.

Stuttgart er í fjórða sæti deildarinnar með 42 stig eftir 22 umferðir, þremur stigum fyrir ofan Leverkusen sem á leik til góða og þremur stigum á eftir Hoffenheim.

Köln er í neðri hlutanum með 23 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir
banner
banner