Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Liverpool og Brighton: Chiesa fær tækifæri
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liverpool og Brighton eigast við í lokaleik dagsins í enska bikarnum og má sjá byrjunarliðin hér fyrir neðan.

Arne Slot þjálfari Liverpool gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Sunderland að velli í miðri viku.

Dominik Szoboszlai og Milos Kerkez koma inn í bakvarðarstöðurnar á meðan Curtis Jones byrjar á miðjunni og Federico Chiesa í sóknarlínunni.

Fabian Hürzeler gerir þrjár breytingar á liði Brighton sem tapaði gegn Aston Villa í miðri viku.

Jason Steele verður á milli stanganna á meðan Charalampos Kostoulas og Harry Howell fá tækifæri í sóknarlínunni.

Liverpool: Alisson, Szoboszlai, Konate, Van Dijk, Kerkez, Jones, Mac Allister, Salah, Wirtz, Chiesa, Gakpo
Varamenn: Mamardashvili, Gomez, Ekitike, Robertson, Gravenberch, Nyoni, Ramsey, Morrison, Ngumoha

Brighton: Steele, Veltman, Van Hecke, Dunk, Kadioglu, Gross, Baleba, Hinshelwood, Gomez, Kostoulas, Howell
Varamenn: Verbruggen, Rutter, Minteh, Welbeck, Milner, Boscagli, Mitoma, Wieffer, De Cuyper
Athugasemdir
banner
banner