Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 13:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Keflavík nældi í sinn fyrsta sigur - HK lagði Fram
Tumi Þorvarsson
Tumi Þorvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir fóru fram í riðli eitt í A-deild Lengjubikarsins í dag.

Vestri fékk Keflavík í heimsókn. Vestri lagði Ægi í sínum fyrsta leik en Keflavík var með eitt stig eftir tap gegn Stjörnunni og jafntefli gegn HK.

Vestri komst yfir snemma leiks þegar Sergine Fall komst í gegn og skoraði. Tíu mínútum síðar jafnaði Marin Mudrazija metin fyrir Keflavík.

Sindri Snær Magnússon kom síðan Keflvíkingum yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði með góðu skoti. Það var síðan Eiður Orri Ragnarsson sem innsiglaði sigur Keflavíkur. Þórður Gunnar Hafþórsson náði að klóra í bakkann fyrir Vestra en það var of seint.

Fram heimsótti HK í Kórinn á sama tíma. Jóhann Þór Arnarsson kom HK yfir eftir rúmlega stundafjórðung og Tumi Þorvarsson bætti öðru markinu við stuttu síðar.

Fred Saraiva náði að minnka muninn strax í kjölfarið en nær komust Framarar ekki og HK fór með sigur af hólmi.

HK 2 - 1 Fram
1-0 Jóhann Þór Arnarsson ('16 )
2-0 Tumi Þorvarsson ('19 )
2-1 Frederico Bello Saraiva ('21 )

Vestri 2 - 3 Keflavík
1-0 Sergine Modou Fall ('5 )
1-1 Marin Mudrazija ('15 )
1-2 Sindri Snær Magnússon ('42 )
1-3 Eiður Orri Ragnarsson ('56 )
2-3 Þórður Gunnar Hafþórsson ('90 )
Lestu um leikinn
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fram 0 0 0 0 0 - 0 0 0
2.    HK 0 0 0 0 0 - 0 0 0
3.    Keflavík 0 0 0 0 0 - 0 0 0
4.    Stjarnan 0 0 0 0 0 - 0 0 0
5.    Vestri 0 0 0 0 0 - 0 0 0
6.    Ægir 0 0 0 0 0 - 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner