Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 14. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Ítalíuslagurinn í Mílanó
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru þrír gríðarlega spennandi leikir sem fara fram í efstu deild ítalska boltans í dag og hefst veislan á Como-vatni þegar lærlingar Cesc Fábregas taka á móti óvæntu fallbaráttuliði Fiorentina.

Albert Guðmundsson meiddist í síðustu umferð og er ekki í hópnum sem ferðast til Como. Meiðslin eru ekki alvarleg og vonast Paolo Vanoli þjálfari til að fá hann aftur inn á völlinn fyrir mánaðamót.

Como er að reynast spútnik lið tímabilsins á Ítalíu og er sem stendur aðeins fimm stigum frá meistaradeildarsæti, með leik til góða á næstu lið í kring. Fiorentina er í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti.

Lazio spilar svo við Atalanta í áhugaverðum slag en það eru sex stig sem skilja að á milli liðanna fyrir neðan evrópusvæðið.

Að lokum eigast Inter og Juventus við í Ítalíuslagnum svokallaða. Inter trónir á toppinum með 58 stig eftir 24 umferðir, tólf stigum meira heldur en Juve sem situr í fjórða sæti.

Þar mætast bræðurnir Marcus og Khéphren Thuram, synir Lilian Thuram.

Leikir dagsins
14:00 Como - Fiorentina
17:00 Lazio - Atalanta
19:45 Inter - Juventus
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 27 22 1 4 64 21 +43 67
2 Milan 27 16 9 2 43 20 +23 57
3 Napoli 27 16 5 6 41 28 +13 53
4 Roma 27 16 3 8 37 19 +18 51
5 Como 27 13 9 5 44 20 +24 48
6 Juventus 27 13 8 6 46 28 +18 47
7 Atalanta 27 12 9 6 37 24 +13 45
8 Bologna 27 11 6 10 36 32 +4 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 27 10 5 12 31 39 -8 35
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 27 8 9 10 20 32 -12 33
13 Cagliari 27 7 9 11 29 36 -7 30
14 Torino 27 8 6 13 27 47 -20 30
15 Genoa 27 6 9 12 32 39 -7 27
16 Fiorentina 27 5 9 13 30 42 -12 24
17 Cremonese 27 5 9 13 21 38 -17 24
18 Lecce 27 6 6 15 18 36 -18 24
19 Pisa 27 1 12 14 20 44 -24 15
20 Verona 27 2 9 16 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner