Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   lau 14. febrúar 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þrettán réttir í Ólafsvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tippari sem styður Víking Ólafsvík fékk þrettán rétta á miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum.

Ólafsvíkingurinn fékk tæpar 2 milljónir króna fyrir að ná öllum þrettán leikjunum rétt.

Hann notaðist við svokallað S-0-10-128 kerfi sem gerir honum kleift að setja tvö tákn á tíu leiki og eitt tákn á hina þrjá leikina.

Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664 krónur. Kerfið er eitt það vinsælasta hjá Íslenskum getraunum og hefur oft reynst tippurum vel.
Athugasemdir
banner