Síðasti leikur 16-liða úrslita í Mjólkurbikarnum er viðureign Fylkis og FH. Leikurinn fer fram á heimvelli Fylkis, Tekk vellinum og hefst á slaginu 15:00.
Sæti í 8-liða í boði fyrir sigurvegara og það má segja að þessi leikur sé einn af áhugaverðri viðureignum í 16-liða.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 0 FH
Heimir Guðjóns þjálfari Fylkis er ekki að flækja hlutina og gerir eina breytingu frá síðasta leik sem var 2-0 tap fyrir Njarðvík. Inn í liðið kemur Dagur Traustason og á bekkinn fer Nikulás Val. Eyþór Wöhler bætist síðan í hópinn í dag og byrjar á bekknum.
Nokkrar breytingar eru á liði FH. Þeir sem detta úr byrjunarliðinu eftir 3-3 jafntefli við Breiðablik eru þeir Tobias Carlsso, Kristján Flóki og Úlfur Ágúst Björnsson. Inn fyrir þá koma þeir Arngrímur Bjartur, Róbert Hugi og Arnór Borg Guðjohnsen.
Byrjunarlið Fylkir:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
6. Guðfinnur Þór Leósson
7. Máni Austmann Hilmarsson
8. Dagur Traustason
10. Benedikt Daríus Garðarsson
17. Birkir Eyþórsson
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
92. Kári Sigfússon
Byrjunarlið FH:
1. Jökull Andrésson (m)
3. Kristján Snær Frostason
6. Grétar Snær Gunnarsson (f)
7. Kjartan Kári Halldórsson
23. Tómas Orri Róbertsson
32. Gils Gíslason
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
66. Viktor Nói Vidarsson
90. Arnór Borg Guðjohnsen



