Stjarnan á stórleik í Garðabænum á morgun þegar FC Kaupmannahöfn kemur í heimsókn. Það er að verða uppselt á þennan leik sem er fyrri viðureign liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar.
FCK er eitt allra stærsta félag norðurlanda og fáir sem búast við því að Stjörnumenn fari áfram úr þessum leikjum. Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, segir að Garðbæingar ætli að selja sig dýrt gegn öflugum andstæðingum.
FCK er eitt allra stærsta félag norðurlanda og fáir sem búast við því að Stjörnumenn fari áfram úr þessum leikjum. Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, segir að Garðbæingar ætli að selja sig dýrt gegn öflugum andstæðingum.
„Samkvæmt styrkleikalista UEFA er þetta öflugasta liðið sem hefur komið á þennan völl og örugglega með öflugri liðum sem hefur komið til Íslands. FCK er risafélag með mikla sögu í Evrópukeppni og í titlasöfnun heima fyrir. Þeir hafa gríðarlegt fjármagn til að borga mönnunum sínum laun. Undir venjulegum kringumstæðum eigum við ekkert að komast áfram úr þessu einvígi. Við komum pressulausir og fullir sjálfstrausts í þennan leik," segir Baldur.
„Það er ákveðinn meðbyr í íslenskum fótbolta sem við ætlum að nýta okkur. Fólk má búast við hörkuleik. Þú þarft að búa þig undir það að vera töluvert minna með boltann og þá er mikilvægt að spennustigið sé hárrét. Við erum tilbúnir í þetta."
Baldur býst ekki við neinu vanmati frá FCK, Danir séu hættir að vanmeta Íslendinga.
„FCK er með samansafn af frábærum leikmönnum og tekur oftast bestu leikmennina úr hinum liðunum í Danmörku. Þeir hafa gríðarleg gæfu og eru með leikmenn sem voru í danska landsliðshópnum á HM. Maður getur nefnt leikmenn eins og Viktor Fischer, Rasmus Falk og svo er Robert Skov á hægri kantinum og Dame N'Doye frammi er hörkuleikmaður. Það er alltaf gaman að máta sig gegn svona gæjum. Þá er líka eins gott að vera tilbúinn."
„Ég hef trú á því að við náum góðum úrslitum og það yrði gaman. Það er alltaf leiðinlegt að fara á útileik í Evrópukeppni með slæm úrslit á bakinu. Það gefur ferðinni minna gildi. Við höfum mikla trú á þessu á morgun en vitum að við þurfum að hitta á þennan eina leik af tíu sem við getum unnið á móti svona liði," segir Baldur en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















