Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd orðað við þrjá - Endurvekja áhugann á Salah
Powerade
Ndiaye fagnar marki á Old Trafford.
Ndiaye fagnar marki á Old Trafford.
Mynd: EPA
Salah til Sádi?
Salah til Sádi?
Mynd: EPA
Þrjú félög orðuð við Casemiro.
Þrjú félög orðuð við Casemiro.
Mynd: EPA
Al-Ittihad endurvekur áhuga sinn á Mo Salah, Iliman Ndiaye er á blaði hjá Man Utd og Barcelona ætlar sér Alessandro Bastoni. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman það helsta og samantektin er í boði Powerade.



150 milljóna punda tilboði Al-Ittihad í Mo Salah var hafnað 2023 en sádi-arabíska félagið hefur endurvakið áhuga sinn á Salah (33) sem er falur á frjálsri sölu í sumar. (ESPN)

Salah bjóst við því að það yrði meiri áhugi á sér í janúar og niðurstaðan varð sú að hann samdi um að verða laus á frjálsri sölu í sumar til að auka möguleika sína. (Telegraph)

Liverpool hefur reglulega verið í sambandi við Xabi Alonso sem vann Meistaradeildina með liðinu 2005. Spánverjinn er til í að taka við af Arne Slot ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt. (Bild)

Liverpool er orðað við Michael Olise (24) en Bayern Munchen hefur ekki áhyggjur af því að hann fari og er hann samningsbundinn til 2029. (Bild)

Man Utd horfir til Yan Diomande (19) vængmann RB Leipzig, Lewis Hall (21) bakvörð Newcastle og Iliman Ndiaye (26) sóknarmann Everton. United býr sig undir að snúa aftur í Evrópubolta eftir sumarið. (Sky Sports)

Man Utd hefur trú á því að félagið getifundið annað félag til að kaupa Marcus Rashford (28) ef Barcelona getur ekki keypt hann á 26 milljónir punda. (ESPN)

Barcelona vill fá Alessandro Bastoni (26) en Liverpool gæti veitt spæsnka félaginu samkeppni um undirskriftina. (Football Italia)

Eddie Howe, stjóri Newcastle, er með stuðning frá félaginu þrátt fyrir að sumir stuðningsmenn séu órólegir eftir að liðið datt úr Meistaradeildinni og tapaði gegn Sunderland. (Times)

Vinicisu JR (25) segist ekki hugsa um annað en að verða lengi hjá Real Madrid en hann gæti skrifað undir nýjan samning. (Sport)

Moises Caicedo (24) er ekki að horfa í kringum sig og ætlar að vera áfram hjá Chelsea. Hann hefur verið orðaður við Real Madrid. (El Chiringuito TV)

Juventus nálgast samkomulag við Dusan Vlahovic (26) um nýjan samning. (Gazzettan)

Deildin í Sádi-Arabíu vill fá bæði Michael Edwards og Richard Hughes sem starfa á bakvið tjöldin hjá Liverpool. (Independent)

Inter Miami er sagt tilbúið að berjast við Sádi-Arabíu um að fá Mo Salah í sínar raðir. (Independent)

Inter Miami hefur hlerað Casemiro varðandi hans framtíð og bæði LA Galaxy og Al Ittihad hafa líka áhuga. (Mail, ESPN, Athletic)

Khvicha Kvaratskhelia, kantmaður PSG, er skotmark Arsenal í sumar. (Independent)

Chelsea skoðar að fá inn Said Remadnia (16) vængmann Marseille. (Sun)

Sonur Cristiano Ronaldo æfði í akademíu Real Madrid á þriðjudag og gæti komið inn í unglingastarfið hjá félaginu í framtíðinni. (Athletic)
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner