Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Stjarnan rúllaði yfir Þrótt
Þór/KA skoraði tíu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru tveir leikir á dagskrá í efstu deild Lengjubikars kvenna í kvöld þar sem Stjarnan rúllaði yfir Þrótt R. á meðan Þór/KA gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu gegn FHL.

Í Garðabæ skoraði Stjarnan fimm mörk í frábærum sigri gegn Þrótti. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir og Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir skoruðu snemma leiks og setti Jana Sól Valdimarsdóttir þriðja markið á 70. mínútu.

Birna Jóhannsdóttir og Nanna Lilja Guðfinnsdóttir áttu eftir að skora í 5-0 sigri og eru Stjörnukonur með níu stig eftir fjórar umferðir, þremur stigum fyrir ofan Þrótt sem á leik til góða.

Í Fjarðabyggðarhöllinni skoruðu Akureyringar sex mörk í fyrri hálfleik og skópu að lokum tíu marka sigur.

Hulda Ósk Jónsdóttir var atkvæðamest með þrennu og náði nafna hennar Hulda Björg Hannesdóttir að setja tvennu.

Þór/KA er með sex stig eftir fjórar umferðir í Lengjubikarnum á meðan FHL er án stiga og með hörmulega markatölu.

Stjarnan 5 - 0 Þróttur R.
1-0 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('2)
2-0 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('9)
3-0 Jana Sól Valdimarsdóttir ('70)
4-0 Birna Jóhannsdóttir ('75)
5-0 Nanna Lilja Guðfinnsdóttir ('93)

FHL 0 - 10 Þór/KA
0-1 Margrét Árnadóttir ('19)
0-2 Hulda Björg Hannesdóttir ('24)
0-3 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('27)
0-4 Hulda Ósk Jónsdóttir ('32)
0-5 Hulda Björg Hannesdóttir ('34)
0-6 Hulda Ósk Jónsdóttir ('45)
0-7 Hulda Ósk Jónsdóttir ('53)
0-8 Ísey Ragnarsdóttir ('74)
0-9 Amalía Árnadóttir ('83)
0-10 Aníta Ingvarsdóttir ('86)
Athugasemdir
banner
banner