Mexíkó og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20:00 að staðartíma í Queretaro, sem er kl. 02:00 í nótt að íslenskum tíma. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Íslenska landsliðið er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni þar sem leikið er utan glugga.
Íslenska landsliðið er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni þar sem leikið er utan glugga.
Þetta verður sjötti landsleikurinn milli Mexíkó og Íslands en aldrei hefur Íslandi tekist að vinna.
Veðbankar telja að það muni ekki breytast í nótt en Epicbet er með 9,10 í stuðul á íslenskan sigur. 5,58 er á jafntefli og 1,30 á mexíkóska liðið sem skipað er leikmönnum úr hinni öflugu Liga MX.
Allar viðureignir Mexíkó og Íslands hafa verið vináttulandsleikir; þeir tveir fyrstu enduðu 0-0 en síðan hefur Mexíkó unnið síðustu þrjár viðureignir. Síðast í maí 2021 þar sem fór 2-1:
2021: Mexíkó 2 - 1 Ísland
0-1 Birkir Már Sævarsson ('14)
1-1 Hirving Lozano ('72)
2-1 Hirving Lozano ('78)
Lestu nánar um leikinn
Ísland hefur aðeins skorað tvö mörk gegn Mexíkó og ljóst að það er ansi erfitt verkefni sem bíður í nótt. Aðstæður gætu einnig reynst strákunum okkar erfiðar. Borgin er hátt í 2 þúsund metra yfir sjávarmáli og leikmenn íslenska liðsins hafa fundið vel fyrir þunna loftinu á æfingum í vikunni.
Það er uppselt á leikinn sem er framundan, yfir 30 þúsund áhorfendur verða samankomnir á Estadio Corregidora.
Athugasemdir



