Þróttur Vogum og Vogabær/Mjólkursamlag KS hafa náð samkomulagi um áframhaldandi samstarf en heimavöllur Þróttara mun áfram heita Vogaídýfuvöllurinn næstu tvö árin.
Þróttarar spila í 2. deild og Auðun Helgason er þjálfari liðsins.
Þróttarar spila í 2. deild og Auðun Helgason er þjálfari liðsins.
„Þetta eru frábærar fréttir fyrir Þrótt Vogum enda hefur samstarfið verið gott og farsælt til fjölda ára, öflugur stuðningur sem við öll erum þakklát fyrir hjá félaginu. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar.
„Ævintýri Vogaídýfunnar hófst í Vogum á sínum tíma, við erum stolt af uppruna hennar, íþróttafélagið í sama sveitarfélagi hefur staðið sig vel í sínu starfi, hér er kraftmikið fólk sem sinnir fórnfúsu starfi og hefur gert það mjög myndarlega. Vogaídýfa og Mjólkursamlag KS óskar Þrótti Vogum velfarnaðar á næstu árum. Áfram Þróttur, “ segir Magnús F. Jónsson samlagsstjóri hjá Mjólkursamlagi KS.
Vogabær ehf. er matvælafyrirtæki sem framleiðir sósur og ídýfur fyrir matvörumarkaði og skyndibitastaði. Fyrirtækið var upphaflega stofnað sem verslun árið 1976 í Vogum en árið 1985 hófst framleiðsla á ídýfum og sósum undir nafninu Vogabær. Vogabær ehf. býr yfir áralangri reynslu í sósugerð. Vogabær er í dag undir Mjólkursamlagi KS. Undir merkjum Vogabæjar eru framleiddar sósur, ídýfur og mjólkurvörur fyrir smásölu og stórnotendamarkað.
Vogabær var upphaflega stofnað sem verslun árið 1976 í Vogum en árið 1985 hófst framleiðsla á ídýfum og sósum undir nafninu Vogabær. Framleiðsla á vörum Vogabæjar er í dag hjá Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki.
Athugasemdir