Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 10:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkasta lið 1. umferðar - Best gegn gömlu félögunum
Arnfríður Auður í baráttu við Natöshu.
Arnfríður Auður í baráttu við Natöshu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrafnhildur Ása fór vel af stað.
Hrafnhildur Ása fór vel af stað.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar fagna marki.
Víkingar fagna marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrstu umferð Bestu deildar kvenna er lokið. Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks byrjuðu á þægilegum 2-0 sigri gegn Þrótti þar sem Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var best á vellinum. Hún er leikmaður sem gæti gjörsamlega sprungið út í sumar.

Agla María Albertsdóttir var einnig frábær í liði Blika sem sitja á toppnum eftir fyrstu umferðina.



Valur byrjaði á 2-1 sigri gegn Grindavík/Njarðvík í hörkuleik. Þar var Natasha Anasi best gegn sínum gömlu félögunum á meðan Arnfríður Auður Arnarsdóttir var valin best í liði Vals.

Jasmín Erla Ingadóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir yfirgáfu einnig Val í vetur en þær voru jafnframt bestar í sínum liðum í þessari umferð. Jasmín átti stórleik fyrir Víking í sigri á Stjörnunni og Arna Sif lék vel í vörn Þórs/KA gegn FH. Freyja Stefánsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir spiluðu einnig vel í þessum leikjum.

Þá mætti markadrottning Lengjudeildarinnar frá því í fyrra í Bestu deildina með hvelli þar sem Allison Lowrey skoraði tvisvar fyrir ÍBV í sigri gegn Fram. Taylor Hamlett átti góðan leik fyrir Fram þar.

Einar Guðnason, þjálfari Víkings, er þjálfari umferðarinnar eftir sigur Víkinga gegn Stjörnunni.

Hér fyrir neðan má sjá öll mörk umferðarinnar af Vísi.






Slapp
banner
banner