Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
   fim 27. júní 2024 23:01
Sölvi Haraldsson
Rúnar Páll er mjög spenntur: Það er gír í okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér líður ágætlega með þetta. Fínt að koma hérna og fá eitt stig.“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-2 jafntefli liðsins við KR.


Lestu um leikinn: KR 2 -  2 Fylkir

Fylkismenn lentu tvisvar undir í dag en komu í bæði skiptin til baka. Rúnar er gífurlega ánægður með karakterinn í liðinu.

Ég er gríðalega ánægður með karakterinn að jafna þetta. Við spiluðum fínasta leik. Við vorum passívir og spiluðum vörnina ágætlega en fáum samt tvö mjög ódýr mörk á okkur að mínu viti. Eins og kannski bara öll mörk sem við fáum á okkur eru. En við héldum ró okkar og nýttum þau færi sem við fengum. Heilt yfir hefði ég viljað vinna en tiltölulega sáttur við þetta stig.

Fyrri umferðin spilaðis ekki vel stigalega séð fyrir Fylki en þeir eru staðráðnir í að safna fleiri stigum í seinni umferðinni.

Fyrri umferðin spilaðist þannig að við fengum sjö stig. Ég er mjög ósáttur með það. Við erum allir mjög ósáttir með það. Frammistaðan hefur verið mjög góð í seinustu leikjum. Við þurfum að byggja ofan á það og gera betur í seinni umferðinni. Það er enginn sem gerir þetta fyrir okkur.

Rúnar segir að það sé gír í Fylkismönnum fyrir komandi átök í Bestu deildinni.

Mér líst vel á framhaldið. Gífurlega spennandi sumar og haust framundan. Það er gír í okkur. Góð stemning í hópnum. Við erum tilbúnir í þennan slag.

Ómar Björn kom inn á í seinni hálfleik og lagði upp seinna mark Fylkis en Rúnar er gífurlega ánægður með mennina sem komu inn í leikinn í dag.

Ég er gífurlega ánægður með þá. Sama með seinustu leiki. Varamennirnir hafa komið mjög vel inn í þetta og breytt gangi leiksins. Þannig á þetta að vera.“ sagði Rúnar Páll að lokum

Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner