Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   lau 28. júní 2014 16:58
Elvar Geir Magnússon
Freyr: Pressa á Sindra að gera þetta áfram eins og maður
Þjálfarar Leiknis, Freyr Alexandersson og Davíð Snorri Jónasson.
Þjálfarar Leiknis, Freyr Alexandersson og Davíð Snorri Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir vann 2-0 sigur gegn Víkingi Ólafsvík í stórleik í 1. deildinni í dag. Sindri Björnsson og Matt Horth skoruðu mörkin.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 -  0 Víkingur Ó.

„Mér fannst við betri í leiknum og stigin þrjú mjög góð. Það er alltaf mjög erfitt að spila við Ólafsvík," sagði Freyr Alexandersson, annar af þjálfurum Leiknis.

„Við vorum skipulagðir og gerðum það sem var lagt upp með. Vorum að skapa okkur færi en nýtingin á færunum var ekki góð og eitthvað sem maður var farinn að hafa áhyggjur af."

Sindri Björnsson, 19 ára miðjumaður Leiknis, hefur stigið vel upp í sumar og skorað grimmt.

„Hann er búinn að standa sig hrikalega vel. Við töluðum um það fyrir tímabilið að ef hann ætlar að taka næsta skref á sínum ferli verður hann að gera eitthvað í sumar. Hann hefur byrjað þetta mót vel og nú er pressa á honum að gera þetta áfram eins og maður," sagði Freyr en viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner