Bryan Mbeumo er á leið í læknisskoðun hjá Man Utd í næstu viku samkvæmt heimildum TalkSPORT.
Man Utd og Brentford eru að ná samkomulagi um kaupverð en það er meira en þær 62,5 milljónir punda sem Man Utd borgaði fyrir Matheus Cunha frá Wolves.
Mbeumo hafnaði því að ganga til liðs við Tottenham og Newcastle en Man Utd var alltaf efst á blaði hjá Kamerúnanum.
Hann skoraði 20 mörk í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann getur bæði spilað kantinum og sem fremsti maður.
Athugasemdir