Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 23:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Útskýrir breytt gengi Stjörnunnar - Svekktur að Blikar verði án tveggja lykilmanna
Jökull Elísabetarson hrósar öllum sem koma að liðinu fyrir betra gengi.
Jökull Elísabetarson hrósar öllum sem koma að liðinu fyrir betra gengi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atla er klár.
Emil Atla er klár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það er gaman að sjá hvað hann er að gera vel'
'Það er gaman að sjá hvað hann er að gera vel'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þeir leikmenn sem munu koma í staðinn fyrir hann eru aðeins öðruvísi leikmen'
'Þeir leikmenn sem munu koma í staðinn fyrir hann eru aðeins öðruvísi leikmen'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmenn munu láta í sér heyra á morgun.
Stuðningsmenn munu láta í sér heyra á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þegar allt kemur til alls þá er það fyrst og fremst hugarfarið sem hefur lagast hjá okkur'
'Þegar allt kemur til alls þá er það fyrst og fremst hugarfarið sem hefur lagast hjá okkur'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stemning á Samsungvellinum.
Stemning á Samsungvellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Leikurinn leggst mjög vel í mig, ég er mjög spenntur fyrir þessum leik, takturinn í liðinu og stemningin er góð. Við erum að fara mæta mjög öflugu liði og ég held að þetta verði mjög skemmtilegur leikur," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, við Fótbolta.net.

Annað kvöld, klukkan 19:15 á Samsungvellinum, tekur Stjarnan á móti Breiðabliki í toppslag 13. umferðar Bestu deildarinnar.

Hugarfar, liðsheild og sjálfstraust
Stjarnan er á góðu skriði í deildinni smá bras í byrjun og er líka komið í undanúrslit bikarsins. Er eitthvað sem þú gerðir fyrir síðustu leiki, eitthvað sem þú breytir?

„Já og nei eiginlega, ég ætla ekki að taka það einn því við sem hópur erum búnir að gera allskonar, búnir að spjalla og fara yfir allskonar hluti og vinna okkur í rétta átt. Ég myndi segja að allur hópurinn á hrós skilið fyrir hvernig við höfum komið okkur upp úr því sem við vorum í og á réttan stað sem ég tel okkur vera á núna. Við getum gert betur, og munum reyna að gera betur en við höfum verið að gera, en ég tel okkur vera komna á rétta leið."

„Það er hægt að segja að einhver sé kominn í liðið, meiðslum fækkað og einhverjir eru rosalega glaðir yfir því að við höfum róterað liðinu minna og telja það ástæðuna. En þetta er alltaf samspil af mjög mörgum þáttum. Við höfum góða hugmynd um hvað það er sem við höfum gert til að ýta okkur á réttan stað. Það á við um allan hópinn, allt teymið og allt í kring,"
segir Jökull.

Andstæðingur þinn á morgun, Dóri, talaði um stöðugleika í liðsvali og sjálfstraust. Er sjálfstraustið stærsti hluturinn í þessu?

„Sjálfstraust kemur með góðri spilamennsku. Þetta lið er það vel þenkjandi að það átta sig á því þegar það er að spila vel þó svo að úrslitin komi ekki endilega með því. Það getur því sjálfstraust fylgt með leik sem fellur ekki endilega með þér. Það er líka andi. Ég held að Dóri hafi nefnt liðsheildina líka, hún er mjög öflug, það eru allir leggja í púkkið og gefa liðinu mikla orku. Þetta er allt í sömu átt, þegar allt kemur til alls þá er það fyrst og fremst hugarfarið sem hefur lagast hjá okkur."

Emil og Kjartan í lagi
Emil Atlason og Kjartan Már Kjartansson voru ónotaðir varamenn gegn ÍA. Hvernig er staðan á hópnum?

„Þeir eru í lagi. Hópurinn er í virkilega góðum málum hvað þetta varðar. Andri Adolphs er ennþá að ná sér til baka eftir höfuðhögg í bikarnum gegn Kára, Daníel Finns er með smá í ristinni og verður ekki með á morgun. Aðrir eru bara í lagi."

Hefði verið skemmtilegra með Tobias og Höskuld með
Hvernig líst Jökli á Blikana?

„Mjög vel, virkilega öflugt lið. Það er aðeins blóðugt fyrir þennan leik að þeir hafi misst tvo sterka leikmenn í bann. Ég held þetta hefði verið skemmtilegri leikur ef að þeir væru með þá með. Þeir eru öflugt og gott fótboltalið, vel þjálfað, og mér líst rosalega vel á þetta."

Eru þeir eitthvað óútreiknanlegri án Höskuldar Gunnlaugssonar og Tobias Thomsen?

„Það held ég ekki. Það auðvitað breytist svolítið dýnamíkin hjá þeim aðallega varðandi Tobias. Þeir leikmenn sem munu koma í staðinn fyrir hann eru aðeins öðruvísi leikmenn. Það eru nokkrir sem gætu leyst þetta og Dóri gæti farið allskonar leiðir í því, en það er enginn sem kemur með það sem Tobias er með þannig það breytir einhverju."

„Þó að Höggi sé mjög afgerandi í sínu liði, hann er hreyfanlegur og góður í fótbolta, mikill mótor í liðinu, en ég held að hans fjarvera breyti aðeins minna hvernig þeir spila að hann detti út, þó að það sé rosalegur missir fyrir liðið held ég."


Spá ekkert í síðasta leik Breiðabliks
Ertu að brýna það fyrir mönnum að þeir munu mæta dýrvitlausir til leiks, sérstaklega af því þeir misstu af tveimur stigum í síðasta leik?

„Við erum ekkert að pæla í því. Alveg sama hvernig þeir eru að spila og leikirnir á undan. Fyrir síðasta leik á móti okkur fannst mér þeir vera búnir að vera slakir, þeir komu á móti okkur og voru mjög beyttir. Þeir voru mjög orkumiklir og voru mjög góðir í síðasta leik á móti okkur. Við pælum ekkert í því hvernig þeir koma inn í leikinn, þeir munu mæta jafn dýrvitlausir sama hvernig síðasti leikur fór. Við einbeitum okkur að okkur og hvað við viljum gera."

Gleður Jökul að sjá Dóra ganga vel
Jökull og Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, eru jafnaldrar og góðir vinir. Hvernig er að mæta Dóra?

„Við erum búnir að mætast þónokkrum sinnum. Það er gaman að sjá hvað hann er að gera vel og hefur gert vel með þetta lið. Það gleður mig. En á meðan leikurinn er þá erum við yfirleitt held ég mjög pirraðir á hvor öðrum og það er bara skemmtilegt."

Komnir þangað að stuðningsmenn séu spenntir
Hversu mikilvægt er að það haldist áfram góð stemning í stúkunni?

„Bara fáránlega mikilvægt. Ég held að það verði aðeins meiri stemning núna en í síðustu leikjum. Það er bara þannig að liðið á aldrei rétt á fullri stúku og rétt á því að það séu læti í stúkunni. Það er eitthvað sem við þurfum að vinna okkur inn. Það er alltaf einhver kjarni sem mætir alltaf, stundum eru læti og stundum minna. Við þurfum að gefa stuðningsmönnum okkar tilefni til þess í fyrsta lagi að mæta og svo tilefni til að gleðjast með okkur og öskra og fagna með okkur. Ég held að við séum komnir þangað núna að stuðningsmennirnir séu spenntir og þeir geti þá gefið okkur sem allra mest úr stúkunni. Það skiptir okkur miklu máli."

„Viljum bara halda áfram að verða betri"
Hafa þrjú stig á móti Breiðabliki meira vægi en á móti öðrum liðum, þar sem þetta er nágrannaslagur?

„Ekkert meira vægi. Við þurfum fyrst og fremst að byggja ofan á hugarfarið og andann sem við höfum sýnt undanfarið, þurfum að halda í sömu liðsheild. Fótboltinn síðan kemur, ég hef engar áhyggjur af því. Einbeitingin er fyrst og fremst á hugarfarið. Það kemur svo leikur eftir þennan leik, nóg að gera í því. Það breytir engu hver andstæðingurinn er, við viljum bara halda áfram að verða betri," segir Jökull.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 12 8 2 2 24 - 13 +11 26
2.    Breiðablik 12 7 2 3 20 - 17 +3 23
3.    Valur 12 6 3 3 30 - 17 +13 21
4.    Stjarnan 12 6 2 4 23 - 20 +3 20
5.    Vestri 12 6 1 5 13 - 9 +4 19
6.    Afturelding 12 5 2 5 14 - 15 -1 17
7.    Fram 12 5 1 6 19 - 18 +1 16
8.    FH 12 4 2 6 17 - 16 +1 14
9.    ÍBV 12 4 2 6 13 - 19 -6 14
10.    KR 12 3 4 5 31 - 32 -1 13
11.    KA 12 3 3 6 10 - 20 -10 12
12.    ÍA 12 3 0 9 13 - 31 -18 9
Athugasemdir
banner