„Þetta var þolinmæðissigur og góð frammistaða hjá okkur. Að vinna 1-0 á heimavelli var gott. Við fengum mikinn stuðning frá stuðningsmönnum okkar en þetta var þolinmæði eftir að staðan var 0-0 í hálfleik. Við vissum samt alltaf að ef við héldum sama tempoi myndum við skora og það rættist þegar Óli Valur þræðir sig í gegnum vörnina og skorar frábært mark. Það var ljúft að sjá það." Sagði Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar eftir góðan sigur 1-0 gegn ÍBV í Bestu deild karla.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 ÍBV
KA tapaði 2-1 gegn Víking í dag sem þýðir að Stjarnan er komið í annað sæti deildarinnar. Stjörnunni var ekki spáð svo ofarlega fyrir mót.
„Stigasöfnunin hefur verið góð en frammistaðan verið upp og niður. Í dag var frammistaðan góð og við tökum það með okkur og við viljum bæta hana. Það er gott að vera í öðru sæti en við stefnum á að gera betur og spurja að leikslokum í lok tímabils."
Landsleikjahlé er framundan og engr leikir spilaðir næstu tvær vikurnar.
„Á morgun byrjum við á endurheimt og næsta helgi er stór helgi þar sem við tökum gott frí og ég mun leyfa strákunum að fara erlendis og slaka á. Þetta hefur verið löng törn hjá okkur en við erum sáttir við það sem við höfum sýnt"
Björn Berg Bryde fór meiddur útaf í leiknum og gat ekki stigið í fótinn þegar hann var studdur af vellinum.
„Ég veit ekki hvort þetta séu alvarleg meiðsli. Hann er búinn að vera að haltra mikið um hérna og hefur líklega misstigið sig en hvort það séu eitthver liðbönd eða eitthvað annað verður að koma í ljós á næstu dögum."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.





















