Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 12:20
Brynjar Ingi Erluson
Emil Ásmunds: Starfið hjá Árna aldrei í hættu
Emil Ásmundsson
Emil Ásmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Árni Freyr Guðnason, þjálfari Fylkis
Árni Freyr Guðnason, þjálfari Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Ásmundsson, leikmaður Fylkis, segir að starf Árna Freys Guðnasonar hafi aldrei verið hættu þrátt fyrir slaka byrjun á tímabilinu.

Lestu um leikinn: Völsungur 1 -  4 Fylkir

Fylkismenn áttu flott undirbúningstímabil undir Árna sem kom frá ÍR eftir síðustu leiktíð.

Árbæingar náðu ekki alveg að færa árangurinn yfir í byrjun tímabilsins og vann liðið aðeins einn leik í fyrstu níu umferðum deildarinnar áður en það náði í langþráðan 4-1 sigur á Völsungi í gær.

Sæti Árna hefur verið heitt og sagðist hann vonast til að fá tíma til þess að snúa gengi liðsins við. Emil, sem er einn af reyndustu leikmönnum Fylkis, segir starf Árna hins vegar aldrei hafa verið í hættu, enda sýnir tölfræðin að Fylkismenn hafa verið að spila vel.

„Starfið var aldrei í hættu. Við stöndum allir, hver og einn einasti leikmaður, á bak við hann. Hann er búinn að breyta þessu liði mjög mikið finnst mér og það tekur tíma þegar þú kemur með nýjar áherslur að ná stöðugleika og auðvitað var þetta lengri kafli en við höfðum vonast og bjuggumst við af því það gekk vel á undirbúningstímabilinu en auðvitað viljum við gera þetta fyrir hann því hann er búinn kenna og sýna okkur hvernig við viljum spila og það er mjög skemmtilegt að spila þennan fótbolta og spila fyrir hann Árna.

„Starfið er aldrei í hættu því öll tölfræði sýnir að við höfum verið að spila vel en það eru þessi 1-2 prósent sem hafa ekki verið að detta með okkur,“
sagði Emil við Fótbolta.net í gær.

Fylkismenn komu sér upp í 9. sæti Lengjudeildarinnar með sigrinum á Völsungi og mæta næst toppliði ÍR á tekk-vellinum í Árbæ 4. júlí.
Fékk að heyra það úr stúkunni - „Eins og einhver hefði lekið þeim upplýsingum"
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 10 6 4 0 18 - 5 +13 22
2.    Njarðvík 10 5 5 0 24 - 10 +14 20
3.    HK 10 5 3 2 19 - 11 +8 18
4.    Þór 10 5 2 3 25 - 17 +8 17
5.    Þróttur R. 10 4 3 3 18 - 17 +1 15
6.    Völsungur 10 4 1 5 16 - 23 -7 13
7.    Keflavík 9 3 3 3 16 - 12 +4 12
8.    Grindavík 9 3 2 4 23 - 25 -2 11
9.    Fylkir 10 2 4 4 14 - 15 -1 10
10.    Leiknir R. 10 2 3 5 12 - 24 -12 9
11.    Selfoss 10 2 1 7 8 - 21 -13 7
12.    Fjölnir 10 1 3 6 11 - 24 -13 6
Athugasemdir
banner
banner
banner