Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   sun 29. ágúst 2021 17:04
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Memphis hetja Barcelona gegn Getafe
Memphis Depay skoraði sigurmark Barcelona
Memphis Depay skoraði sigurmark Barcelona
Mynd: EPA
Barcelona 2 - 1 Getafe
1-0 Sergi Roberto ('2 )
1-1 Sandro Ramirez ('19 )
2-1 Memphis Depay ('30 )

Hollenski sóknarmaðurinn Memphis Depay fer heldur betur vel af stað með Börsungum en hann gerði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Getafe í dag.

Spænski hægri bakvörðurinn Sergi Roberto kom Barcelona yfir á 2. mínútu leiksins áður en Sandro Ramirez jafnaði metin aðeins sautján mínútum síðar.

Þegar hálftími var búinn af leiknum skoraði Memphis með góðu skoti í nærhornið eftir að hafa tekið nokkur skæri.

Þetta var annað mark hans í deildinni í þremur leikjum en hann hefur einnig lagt upp eitt mark.

Barcelona hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner