Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   mán 29. desember 2025 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Ferguson frábær í sigri Roma á Genoa
Evan Ferguson
Evan Ferguson
Mynd: EPA
Roma 3 - 1 Genoa
1-0 Matias Soule ('14 )
2-0 Manu Kone ('19 )
3-0 Evan Ferguson ('31 )
3-1 Jeff Ekhator ('87 )

Roma vann sannfærandi sigur gegn Genoa í ítölsku deildinni í kvöld. Matias Soule kom Roma yfir eftir stundafjórðung. Stuttu síðar bætti Manu Kone við öðru marki með skoti úr teignum eftir að Evan Ferguson sendi á hann.

Ferguson skoraði síðan þriðja markið eftir vandræðagang í vörn Genoa og Roma var komið í ansi góða stöðu.

Genoa náði ekki að klóra í bakkann fyrr en undir lokin þegar Jeff Ekhator skoraði eftir smá darraðadans inn á teignum en nær komst Genoa ekki.

Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn fyrir Genoa sem er í 17. sæti með 14 stig, aðeins tveimur stigum frá fallsæti. Roma er í 4. sæti með 33 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 3 12 45 29 +16 57
7 Atalanta 33 15 11 7 45 28 +17 56
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
13 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
14 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner
banner