Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   fim 30. apríl 2015 20:30
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin
Andri Ólafs: Teljum okkur betri en spárnar segja
Andri við varamannabekkinn.
Andri við varamannabekkinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Ólafsson fyrirliði ÍBV segir spennu innan leikmannahópsins og menn séu klárir í slaginn fyrir fyrsta leik Pepsi-deildarinnar. Eyjamenn heimsækja Fjölni í Grafarvoginn klukkan 17:00 á sunnudag.

ÍBV er spáð tíunda sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

„Þetta eru fjögur lið sem menn eru að spá neðst. Það virðist vera að menn haldi að deildin verði þrískipt. Við teljum okkur vera betri en það og förum ekki inn í mótið með það í huga að ætla að vera þarna. Okkar markmið er hærra," segir Andri.

Hann segir undirbúningstímabilið hafa gengið vel.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við erum allir í Vestmannaeyjum yfir allan veturinn fyrir utan kannski einn til tvo leikmenn. Þetta er mjög gott og við erum nokkuð bjartsýnir."

„Við gerum okkur grein fyrir því að við erum ekki með sterkasta hópinn í deildinni en treystum á að þetta smelli saman hjá okkur og við förum þetta á liðsheildinni og stemningunni. Gæðin eru vissulega til staðar en vissulega má lítið út af bregða ef ekki á illa að fara."

Andri spáir KR sigri á mótinu en viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner