Eysteinn Húni Hauksson, þjálfari Keflavíkur, mætti í viðtal hjá Fótbolta.net eftir 3-1 tap á heimavelli gegn Breiðablik í kvöld. Keflavík er enn án sigurs eftir 14 leiki í deildinni.
„Ég sé ekki eftir því hvernig við settum leikinn upp, fyrri hálfleikur var nákvæmlega eins og við vonuðumst eftir," sagði Eysteinn eftir leikinn.
„Ég sé ekki eftir því hvernig við settum leikinn upp, fyrri hálfleikur var nákvæmlega eins og við vonuðumst eftir," sagði Eysteinn eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 3 Breiðablik
„Þegar þeir sköpuðu hættu vorum við harðir og hugrakkir. Við sköpuðum ekki mikið en planið var að halda þeim sem lengst í núllinu. Ef við hefðum haldið þeim lengur í núllinu þá hefðu þeir farið að skjálfa og við fengið aukna trú. Svo kemur markið og við slitnum aðeins eftir það og fáum annað markið. Við reyndum í lokin en það var ekki nóg."
„Ég þarf aðeins að skora mörkin aftur, ég skoða þau mjög vel og reyni að vinna í því að við lærum af því."
„Það kom 10 mínútna kafli þar sem þeir voru að losna mikið. Þetta eru þannig leikmenn að um leið og þeir losna þá sýna þeir hversu góðir þeir eru. Þeir sýndu gæðin þegar þeir fengu að vera í friði."
Keflavík minnkaði muninn í 2-1 á 82. mínútu en Breiðablik fékk víti í uppbótartíma og gekk frá leiknum. Mistökin voru víti að mati Eysteins.
„Mér fannst dómarinn mjög góður en ég held að þetta hafi verið mistök hjá honum. Ég tek það fram að dómarinn hafi verið mjög góður í leiknum."
Athugasemdir























