Arsenal líklegt til að fá Eze - Arsenal hefur enn ekki náð samkomulagi um Gyökeres - Napoli vill Nunez
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
Heimir Guðjóns: Vítið sem Stjarnan fékk var rangur dómur
„Ekki búin að því og ég veit ekki hvort maður muni gera það"
Svaf ekki mikið - „Þurfum að nota þetta sem spark í rassinn"
Sár, svekkt og leið - „Ég er ekki sú ferskasta núna"
„Þetta er ekki upplifun sem ég hef fengið áður"
Steini: Ég er með samning áfram
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
   fös 30. september 2016 19:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Edda Garðars: Mjög kaflaskiptur leikur hjá okkur
Kvenaboltinn
Edda Garðarsdóttir
Edda Garðarsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög kaflaskiptur leikur hjá okkur og stressið umturnaði okkar leik í fyrri hálfleik. Skagamenn skora snemma og síðan fáum við á okkur pínu klaufalegt mark, en síðan var seinni hálfleikurinn allt annar hjá okkur," sagði Edda Garðarsdóttir, þjálfari KR, eftir 3-2 sigur á ÍA í Pepsi-deild kvenna í dag.

Þessi sigur hélt KR-ingum upp í Pepsi-deildinni, en það var endurkoma í seinni hálfleik sem skilaði þessum sigri. Staðan var 2-0 fyrir ÍA í leikhlé, en Edda segir að það hafi verið allt undir í seinni hálfleiknum.

Lestu um leikinn: ÍA 2 -  3 KR

„Þetta er bara svona 2-0 undir í hálfleik og allt undir, maður hefur svosem lent í þessu áður á ferlinum og það er bara að leggja línurnar, skerpa á áherslunum og fá þær til þess að finna lausnirnar sjálfar."

Aðspurð að því hvort hún muni halda áfram með KR-liðið á næsta leiktímabili segist hún ekki vita það á þessu augnabliki.

„Ég bara veit það ekki, ég á eftir að hitta KR, við spjöllum saman í vikunni. Mér finnst mjög gaman að þjálfa og það gefur mér mjög mikið. Við sjáum bara til."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner