Man Utd í viðræðum um Donnarumma - Rodrigo Muniz er orðaður við Newcastle
   fim 31. júlí 2025 11:09
Elvar Geir Magnússon
Messi funheitur - Skorað eða lagt upp í 21 af 27 mörkum
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: EPA
Lionel Messi, einn besti fótboltamaður sögunnar, átti stórleik fyrir Inter Miami og lagði upp bæði mörk liðsins í 2-1 sigri gegn Atlas frá Mexíkó í deildabikarnum.

Messi hefur skorað eða lagt upp í 21 af 27 síðustu mörkum Inter Miami. Mögnuð tölfræði.

Hann er nýkominn úr eins leiks banni fyrir að hafa hafnað því að spila í stjörnuleik MLS-deildarinnar og var í miklu stuði gegn Atlas.

Leikurinn í nótt var dramatískur en sigurmarkið skoraði Marcelo Weigandt í uppbótartíma. Markið var fyrst dæmt af en fékk að standa eftir VAR skoðun.

Messi fagnaði með því að öskra á einn af mótherjum sínum en baðst síðan afsökunar eftir leikinn og gaf honum treyjuna sína.

Sigurmarkið:


Svipmyndir úr leiknum:

Athugasemdir
banner