PSG hefur ekki áhuga á Bruno Guimaraes - Slot flytur inn þar sem Klopp býr - Bayern í viðræðum við Flick - Reus eftirsóttur utan Evrópu
   fös 05. ágúst 2011 07:30
Hörður Snævar Jónsson
Milos Milojevic hættur hjá Víkingi út tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Milos Milojevic leikmaður Víkings mun ekki spila meira með liðinu á þessari leiktíð.

Milos er að taka við 2. flokki félagsins sem Bjarnólfur Lárusson nú þjálfari meistaraflokksins þjálfaði áður.

,,Tímabundið hættur að spila með Víking og er að taka við 2.flokki," sagði Milos á Twitter síðu sinni.

Milos hefur leikið fimm leiki með Víkingum í Pepsi deildinni í sumar og tvo í bikarnum.

Hann kom til Víkings fyrir síðustu leiktíð en áður hafði hann leikið með Hamar og Ægi.
banner
banner
banner