Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
   þri 30. ágúst 2011 22:53
Hafliði Breiðfjörð
Guðmunda: Mjög gott að hafa stúkuna með
Kvenaboltinn
Guðmunda Óladóttir leikmaður Selfoss var að vonum hæstánægð eftir að liðið tryggði sér sæti í efstu deild kvenna að ári með góðum 6-1 sigri gegn Keflavík.

„Mér líður bara rosalega vel. Þetta er eiginlega ástæðan af hverju maður er í fótbolta, það eru þessir leikir,“ sagði Guðmunda við Fótbolta.net.

Guðmunda segir að góður stuðningur áhorfenda hafi hjálpað þeim til sigurs í þessum leik í kvöld.

„Við fundum fyrir því í Tindastóls leiknum að þá fengum við stúkuna með okkur og það hjálpaði okkur rosalega. Við auglýstum þennan leik mjög vel þannig að það var mjög gott að hafa stúkuna með.“

Selfoss tapaði fyrri leiknum í Keflavík með einu marki en þær voru mun betri í þessum leik. Guðmunda telur að of mikið stress hafi verið í liðinu í fyrri leiknum.

„Við mættum bara illa stemmdar í leikinn, við vorum kannski stressaðar og ég held að það hafi verið okkur að falli. Við vorum að klúðra sendingum á miðjunni og vorum ekki mættar í þann leik.“
Slapp
banner
banner