Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 14:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Búast við því að uppselt verði á opnunarleikinn
Stúkan á Víkingsvelli.
Stúkan á Víkingsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik liðanna á Víkingsvelli á síðasta tímabili.
Úr leik liðanna á Víkingsvelli á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkjandi Íslandsmeistarar í Víkingi taka á móti Breiðabliki í opnunarleik Bestu deildarinnar klukkan 19:15 annað kvöld. Miðasala á leikinn fór af stað í gær og búast Víkingar við því að uppselt verði á leikinn.

Fótbolti.net ræddi við Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóra Víkings, í dag.

„Ársmiðahafar fengu fyrstir tækifæri til að tryggja sér miða og í kjölfarið opnaði almenn miðasala í gær. Við erum ekki með sérstakan kvóta varðandi hvort það séu Víkingar eða Blikar að kaupa," segir Guðjón.

Um 1100 manns komast í stúkuna en svæðið er tilbúið að taka á móti um 2000 manns. Búið er að koma upp varanlegum brettastúkum við hlið stúkunnar.

„Við erum með stærri brettastúku öðru megin við stúkuna og svo aðeins minni hinum megin við. Við reiknum alveg með því að það verði um 2000 manns og að þá verði uppselt. Það er frítt fyrir börn á Víkingsvöllinn (undir 16 ára), því er fjöldinn aðeins teygjanlegur."

„Miðasalan hefur farið allt í lagi af stað, það er svo sem engin hefð fyrir því að fólk tryggi sér löngu fyrir leik. Ég held við séum komnir í 1200-1300 selda miða. Ég held það sé bara spurning hvort það verði uppselt í kvöld, á morgun eða rétt fyrir leik. Spáin er fín og stemningin fyrir leiknum er góð,"
segir Guðjón.

Hægt er að kaupa miða á leikinn í Stubbi og kostar miðinn 2500 krónur.



Slapp
banner
banner