,,Það er lélegt hjá okkur a vinna þá ekki allavegana einu sinni í sumar. Við spiluðum þrisvar við þá í sumar og unnum aldrei þannig að þeir hljóta að vera vel að þessu komnir," sagði Þórður Einarsson þjálfari KB eftitr 2-2 jafntefli gegn KFR í kvöld sem þýðir að liðið komst ekki upp í aðra deild.
Lestu um leikinn: KB 2 - 2 KFR
,,Leikur okkar var mjög lélegur í fyrri hálfleik og lélegur framan af í seinni. Þegar við förum í 2-1 tökum við öll völd á vellinum og þeir falla til baka og vita ekkert hvað þeir eiga að gera við boltann."
,,Þetta er ekki teknískasta lið landsins sem við vorum að spila við en þeir hafa vilja og baráttu og svo eru þeir með senter sem er feykilega góður, þessi, Reynir (Björgvinsson), við réðum ekkert við hann."
KB vildi fá vítaspyrnu í síðari hálfleiknum en Örvar Sær Gíslason dómari leiksins dæmdi ekkert.
,,Mér fannst við eiga að fá víti í þessum leik. Ég skrifa ekkert á dómarann í þessu en hann var lélegri en bæði liðin og þetta var 3. deild. Hann var ömurlega lélegur en við töpuðum þessu samt. Ég er ekki að kenna dómaranum um að við höfum tapað þessu en hann hélt engri línu, réði ekki við leikinn og var mjög slakur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























