Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson töluðu um fótbolta í tvær klukkustundir í gær þegar útvarpsþátturinn Fótbolti.net var á dagskrá X-ins 97,7 eins og alla aðra laugardaga.
Þeir félagar gerðu Pepsi-deildina 2011 upp og skoðuðu skemmtilega vinkla á Íslandsmótinu þetta sumarið.
Einnig spjölluðu þeir um íslenska landsliðið og Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður Ajax, kíkti í heimsókn.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Kolbeinn Sigþórsson
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.

