Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   fim 22. janúar 2015 13:14
Elvar Geir Magnússon
Ödegaard eyddi tístum þar sem hann hrósaði Messi
Ödegaard er kominn til Real Madrid.
Ödegaard er kominn til Real Madrid.
Mynd: Getty Images
El Mundo Deportivo segir frá því að norska ungstirnið Martin Ödegaard hafi eytt gömlum færslum á Twitter þar sem hann hrósaði Lionel Messi, leikmanni Barcelona.

Ödegaard verður kynntur sem leikmaður Real Madrid eftir örfáar mínútur en um 20 norskir blaðamenn eru mætti til Spánar á fréttamannafund sem fer að hefjast.

Ödegaard varð 16 ára í síðasta mánuði en líklegt er að hann verði yngsti leikmaður til að spila fyrir Real Madrid, slái met Jose Rodriguez sem var 17 ára og 354 daga gamall.

Fótbolti.net færir frekari fréttir af Ödegaard í dag.
Athugasemdir
banner