Slúðurpakki dagsins - Það helsta í slúðrinu: Barcelona vill halda Rashford - Chelsea leiðir baráttuna um Vinicius
banner
   sun 11. janúar 2026 11:00
Kári Snorrason
Barcelona vill halda Rashford - Chelsea leiðir baráttuna um Vinicius
Powerade
Börsungar eru ánægðir með Rashford.
Börsungar eru ánægðir með Rashford.
Mynd: EPA
Vinicius hefur ekki skrifað undir nýjan samning við Real Madrid.
Vinicius hefur ekki skrifað undir nýjan samning við Real Madrid.
Mynd: EPA
Barcelona vill halda Rashford, Vinicius orðaður við Chelsea og möguleg endurkoma Tammy Abraham til Aston Villa. Þetta og margt fleira í slúðri dagsins, sem er í boði Powerade og BBC tekur saman.



Barcelona vill halda enska framherjanum Marcus Rashford (28) lengur en lánssamningur hans frá Man Utd kveður á um. (Athletic)

Aston Villa horfir í að fá Tammy Abraham (28) aftur til félagsins. Abraham leikur á láni með Besiktas frá Roma. (Telegraph)

Manchester United vonast til að sigra Arsenal í baráttunni að fá Igor Tyjon, (17) unglingalandsliðsmann Englands sem leikur með Blackburn Rovers. (Sun)

Newcastle horfir hýru auga til Giorgio Scalvini, (22) leikmanns Atalanta og ítalska landsliðsins, í kjölfar meiðsla Fabian Schar (34). (Teamtalk)

Chelsea er í bílstjórasætinu í baráttunni um Vinicius Jr, (25) leikmanns Real Madrid. Samningur Brasilíumannsins rennur út eftir rúmt ár og Chelsea undirbýr 150 milljón evra boð í leikmanninn. (Fichajes)

Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, er sagður efstur á blaði hjá Manchester United þegar kemur að næsta knattspyrnustjóra liðsins. (CaughtOffside)

Forráðamenn United vonast til að niðurstaða liggi fyrir í næstu viku um hver stýrir liðinu út tímabilið. (ESPN)
Athugasemdir
banner
banner
banner