Slúðurpakki dagsins - Það helsta í slúðrinu: Barcelona vill halda Rashford - Chelsea leiðir baráttuna um Vinicius
   sun 11. janúar 2026 14:56
Kári Snorrason
Æfingaleikur: Haukar skoruðu sex gegn Grindavík
Guðjón Pétur og Jón Arnar Barðdal.
Guðjón Pétur og Jón Arnar Barðdal.
Mynd: Haukar
Rúnar Ingi kom til Grindavíkur fyrr í vetur frá Keflavík. Hann lék á láni hjá Þrótti Vogum síðasta sumar.
Rúnar Ingi kom til Grindavíkur fyrr í vetur frá Keflavík. Hann lék á láni hjá Þrótti Vogum síðasta sumar.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Haukar 6-2 Grindavík

Mörk Hauka: Ísak Jónsson, Jón Arnar Bardal (2), Tómas Atli Björgvinsson, Baltasar Trausti Ingvarsson og Jón Gísli Stefánsson
Mörk Grindavíkur: Rúnar Ingi Eysteinsson (2)



Lærisveinar Guðjóns Péturs Lýðssonar í Haukum gerðu sér lítið fyrir og unnu Grindavík 6-2 í æfingaleik í gærdag.

Leikurinn var jafn framan af og skiptust liðin á að sækja. Haukar skoruðu fyrsta markið, en Rúnar Ingi Eysteinsson jafnaði metin skömmu síðar. Í kjölfarið náðu Haukar góðum kafla og komust í 3–1, áður en Grindvíkingar minnkuðu muninn og staðan varð 3–2.

Í stöðunni 3-2 fengu Grindvíkingar tækifæri til að jafna úr vítaspyrnu, en henni var klúðrað. Í kjölfarið gáfu Haukar í og skoruðu þrjú mörk til viðbótar og tryggðu sér góðan 6-2 sigur.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet

Athugasemdir
banner