Arsenal tryggði sig áfram í fjórðu umferð enska FA-bikarsins með 4-1 sigri á Portsmouth á Fratton Park fyrr í dag. Það voru þó heimamenn sem brutu ísinn snemma leiks en það tók ekki langan tíma fyrir Lundúnarliðið að svara fyrir sig.
Andre Dozzell varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir hættulega hornspyrnu Arsenal fimm mínútum eftir mark Portsmouth. Skömmu seinna var það Gabriel Martinelli sem skoraði eftir hornspyrnu.
Noni Madueke klikkaði þá á vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur rétt fyrir hálfleik. Það var svo Martinelli sem kláraði leikinn fyrir Skytturnar er hann skoraði í tvígang í síðari hálfleik.
Andre Dozzell varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir hættulega hornspyrnu Arsenal fimm mínútum eftir mark Portsmouth. Skömmu seinna var það Gabriel Martinelli sem skoraði eftir hornspyrnu.
Noni Madueke klikkaði þá á vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur rétt fyrir hálfleik. Það var svo Martinelli sem kláraði leikinn fyrir Skytturnar er hann skoraði í tvígang í síðari hálfleik.
West Ham lenti þá í erfiðleikum gegn QPR, en hafði þó betur eftir framlengdan leik.
Crysencio Summerville kom Hömrunum yfir undir lok fyrri hálfleiks en Richard Kone jafnaði metin í síðari hálfleik fyrir QPR og skildu liðin jöfn að eftir venjulegan leiktíma.
Argentínumaðurinn Valentin Castellanos tryggði þá West Ham sigurinn með marki á áttundu mínútu framlengingarinnar.
Norwich vann öruggan sigur á D-deildarliðinu Walsall, lokatölur á Carrow Road 5-1. Ungi framherjinn Jovon Makama fór þar á kostum en hann skoraði þrjú mörk áður en honum var skipt af velli á 59. mínútu.
Það voru óvænt úrslit á Bramall Lane er Championship-liðið Sheffield United tapaði gegn C-deildarliðinu Mansfield Town. Leiknum lauk með 3-4 sigri Mansfield.
Liðsfélagar Andra Lucasar Guðjohnsen í Blackburn máttu þola tap í vítaspyrnukeppni gegn Hull. Andri var fjarverandi vegna meiðsla. Þá þurfti jafnframt vítaspyrnukeppni til að skilja Swansea og West Brom að og þar hafði West Brom betur.
Portsmouth 1 - 4 Arsenal
1-0 Colby Bishop ('3 )
1-1 Andre Dozzell ('8 , sjálfsmark)
1-2 Gabriel Martinelli ('25 )
1-2 Noni Madueke ('43 , Misnotað víti)
1-3 Gabriel Martinelli ('51 )
1-4 Gabriel Martinelli ('72 )
Hull City 0 (4) - (3) 0 Blackburn
Norwich 5 - 1 Walsall
1-0 Matej Jurasek ('15 )
2-0 Jovon Makama ('24 )
3-0 Jovon Makama ('48 )
4-0 Jovon Makama ('55 )
4-1 Courtney Clarke ('67 )
5-1 Tony Springett ('90 )
Sheffield Utd 3 - 4 Mansfield Town
0-1 Louis Reed ('13 )
1-1 Gustavo Hamer ('20 )
1-2 Louis Reed ('44 )
1-3 Lucas Akins ('50 )
1-4 Rhys Oates ('57 )
2-4 Patrick Bamford ('61 )
3-4 Nathan Moriah-Welsh ('65 , sjálfsmark)
Swansea 2 (5) - (6) 2 West Brom
1-0 Ji-sung Eom ('48 )
1-1 Josh Maja ('53 )
1-2 Jed Wallace ('108 )
2-2 Zeidane Inoussa ('112 )
West Ham 2 - 1 QPR
1-0 Crysencio Summerville ('45 )
1-1 Richard Kone ('65 )
2-1 Taty Castellanos ('98 )
Athugasemdir



