Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mið 01. febrúar 2017 01:11
Elvar Geir Magnússon
Marquez og Dos Santos í hópi Mexíkó gegn Íslandi
Mexíkó hefur opinberað 23 manna hóp fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem verður í Las Vegas í Bandaríkjunum í næstu viku. Leikurinn verður 2:30 að íslenskum tíma aðfaranótt fimmtudags.

Varnarmaðurinn reynslumikli Rafael Marquez, fyrrum leikmaður Barcelona, er í hópnum. Hann verður 38 ára síðar í þessum mánuði og hefur leikið 134 landsleiki fyrir Mexíkó.

Marquez komst í fréttirnar á dögunum fyrir skemmtilegt skot á forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Þá er sóknarmaðurinn Giovani dos Santos í hópnum. Hann er nú hjá LA Galaxy í Bandaríkjunum en hefur meðal annars spilað fyrir Barcelona, Tottenham og Villarreal. Hann á eitt mark á HM á ferilskránni en það kom gegn Kosta Ríka 2010.

Mexíkó notar leikinn sem undirbúning fyrir CONCACAF undankeppnina fyrir HM í Rússlandi 2018. Liðið er í öðru sæti í sex liða riðli, tveimur stigum á eftir Kosta Ríka.

Markverðir: Jesus Corona (Cruz Azul), Hugo Gonzalez (Monterrey), Alfredo Talavera (Toluca)

Varnarmenn: Oswaldo Alanis (Guadalajara), Nestor Araujo (Santos), Hugo Ayala (Tigres), Jesus Gallardo (Pumas), Raul Lopez (Pachuca), Rafael Marquez (Atlas), Luis Reyes (Atlas), Jorge Torres Nilo (Tigres)

Miðjumenn: Edson Alvarez (Club America), Jurgen Damm (Tigres), Jesus Dueñas (Tigres), Erick Gutierrez (Pachuca), Jesus Molina (Monterrey), Orbelín Pineda (Guadalajara)

Sóknarmenn: Giovani dos Santos (LA Galaxy/USA), Elias Hernandez (Leon), Hirving Lozano (Pachuca), Luis Montes (Leon), Alan Pulido (Guadalajara), Angel Zaldivar (Guadalajara),

Sjá einnig:
Landsliðshópur Íslands fyrir leikinn
Athugasemdir
banner
banner